Síðast uppfært: 13. júní 2025
Við hjá Astro Pizza virðum einkalíf þitt og leggjum ríka áherslu á að meðhöndla persónuupplýsingar á öruggan og ábyrgan hátt. Þessi stefna útskýrir hvernig við söfnum, notum og geymum upplýsingar sem viðskiptavinir veita okkur við samskipti, pantanir, á heimasíðu, heimsendingarþjónustu og í samstarfi við Wolt.
Við söfnum eftirfarandi upplýsingum í þeim tilgangi að geta veitt þjónustu:
Nafn
Símanúmer
Heimilisfang (ef valin er heimsending)
Netfang (ef óskað er eftir kvittun, staðfestingu eða póstlista)
Tímasetning og afhendingarupplýsingar
SMS-staðfesting (við sendum sjálfvirkt SMS þegar pöntun fer í ofninn)
Við fáum einungis þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að undirbúa og afhenda pantanir.
Við notum upplýsingarnar eingöngu til eftirfarandi nota:
Til að afgreiða og afhenda pantanir
Til að hafa samband við viðskiptavini ef vandamál koma upp
Til að senda sjálfvirkar tilkynningar (t.d. SMS við staðfestingu eða uppfærslu pöntunar)
Til að greina og bæta þjónustuna okkar (t.d. með einfaldri greiningu á tímasetningum og vinsælum vörum)
Póstlista á nýjungum og tilboðum
Við deilum aðeins nauðsynlegum upplýsingum með eftirfarandi þjónustuaðilum:
SMS-gátt (Nova) – eingöngu til að senda tilkynningar um pöntun
Heimsendingarþjónusta – ef pöntun er valin með heimsendingu (nafn, sími og afhendingarstaður)
Greiðslugátt Teya – til að framkvæma greiðslu með korti eða rafrænni lausn (við geymum ekki kortaupplýsingar sjálf)
Við seljum aldrei upplýsingar um viðskiptavini til þriðja aðila.
Pöntunarsaga í vefkerfi er geymd á meðan viðskiptavinur er skráður í kerfið
Símanúmer og netföng sem notuð eru við pöntun eru geymd svo lengi sem viðskiptavinur nýtir sér þjónustuna eða þar til hann óskar eftir eyðingu
Sem viðskiptavinur átt þú rétt á að:
Fá upplýsingar um hvaða gögn við geymum um þig
Krefjast leiðréttingar eða eyðingar á upplýsingum
Draga til baka samþykki fyrir notkun
Koma kvörtun á framfæri við Persónuvernd (www.personuvernd.is)
Við tryggjum öryggi persónuupplýsinga með eftirfarandi hætti:
Allar upplýsingar eru sendar yfir dulkóðað net (SSL)
Aðgangur að kerfum er takmarkaður við starfsfólk sem þarf gögnin
Reglulegar öryggisuppfærslur eru gerðar á tölvukerfum og veflausnum
Ef þú hefur spurningar um persónuvernd eða vilt nýta rétt þinn geturðu haft samband við okkur:
Astro Pizza - Hvannavellir
Netfang: astropizza@astropizza.is
Sími: 5880588
Heimasíða: www.astropizza.is